Jóga með Eygló
Hæ, takk fyrir að vera hérna með mér! Hér eru ýmsar jógaupptökur frá mér frá nýliðnum árum. Ég er að meta það hvað ég eigi að gera við þetta efni, og í framhaldi, hvort ég eigi að bæta við í safnið, fleiri tímum með áherslum. Þar kemur þú inn í myndina! Má bjóða þér að vera með á þessu ferðalagi og aðstoða mig við að velja næstu skref. Viltu vera með í rýnihópnum?
Your Instructor
Það er mitt persónulega markmið að aðstoða venjulegt fólk við að setja sér góðar venjur sem bæta líkamlegt hreysti og skerpa hugann.
Mín ástríða er að hjálpa þér að komast þangað sem þú vissir ekki að þig langaði!
Hér má finna þær leiðir sem ég hef bæði prófað á sjálfri mér og öðrum og hafa reynst vel.
Ég sagði upp starfi í banka árið 2010 til að leita uppi leiðir til að hjálpa öðrum að bæta heilsuna á einfaldan hátt á hverjum degi. Frá 2008 hef ég ástundað og kennt jóga.
Í meira en áratug var aðalstarf mitt á vegum Jakkafatajóga sem ég stofnaði sjálf árið 2013, en þá bauð ég upp á stutta og hnitmiðaða jógatíma á vinnutíma í vinnurými fyrirtækja.
2019 opnaði ég ásamt öðrum Metabolic Reykjavík; þjálfunarstöð við Gullinbrú sem býður upp á hóptíma í 4 erfiðleikastigum fyrir önnum kafið nútímafólk.
Nú bý ég í Vestmannaeyjum, en þangað flutti ég árið 2023. Þar tók ég við rekstri sem nú heitir Metabolic Vestmannaeyjar sem byggir á sama módeli og þjálfunarstöðin hjá Metabolic Rvk.
Course Curriculum
-
StartFlæði, rólegt og stutt
-
StartMjúkt morgunflæði
-
StartDjúpar teygjur fyrir mjaðmir og axlir
-
StartJóga, flæði og djúpar teygjur
-
StartMjúkur jógatími
-
StartFlæði, tvær útgáfur af höfuðstöðu
-
StartEinfalt, kröftugt flæði
-
StartJóga, djúpar teygjur
-
StartFlæði, hlauparateygjur
-
StartFlæði, með áherslu á axlir og höfuðstöðu
-
StartFlæði, góð liðkun frá ökklum að úlnliðum